Cancion : A Sprengisandi Artista : Fferyllt Album : Achanterez Url : https://www.letras10.co/letra-a-sprengisandi-de-fferyllt Ríðum, ríðum og rekum yfir sandinn Rennur sól á bak við Arnarfell Hér á reiki er margur óhreinn andinn úr því fer að skyggja á jökulsvell; Drottinn leiði drösulinn minn Drjúgur verður síðasti áfanginn Drottinn leiði drösulinn minn Drjúgur verður síðasti áfanginn Þey þey! þey þey! þaut í holti tófa þurran vill hún blóði væta góm Eða líka einhver var að hóa Undarlega digrum karlaróm; útilegumenn í Ódáðahraun Eru kannske að smala fé á laun útilegumenn í Ódáðahraun Eru kannske að smala fé á laun Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn Rökkrið er að síða á Herðubreið álfadrottning er að beisla gandinn Ekki er gott að verða á hennar leið; Vænsta klárinn vildi ég gefa til Að vera kominn ofan í Kiðagil Vænsta klárinn vildi ég gefa til Að vera kominn ofan í Kiðagil ========================== Letra descargada de Letras10.co ==========================