Cancion : Þórisvatn (Næturvinnan) Artista : Kef Lavík Album : Vesæl Í Kuldanum Url : https://www.letras10.co/letra-thorisvatn-naeturvinnan-de-kef-lavik Alein um nótt, gegnum gjöreyddar borgir við keyrum Þótt þú þegir og sofir þá glottir þú skítt út að eyrum Aldrei viðurkennir þú það fyrir aðra Þú ert lítil sál Allt sem þú snertir mun breytast í gull á núll einni Þegar tunglið er fullt mun ég umbreytast, verða að steini Sársaukinn í hausnum á mér hann mun hverfa Gefðu mér smá stund Við erum lítið fólk Fyrir heiminum Við verðum Þórisvatn Myndum flóana Dreymi hana gangandi heim til mín Ég hef gengið gegnum öll helvíti Hún er eins og Barbara Stanwyck Uppmáluð og svarthvít Gengur inn í íbúð og kveikir sér í sígarettu Ég er á leiðinni Hugsandi um allt sem ég gerði henni Meðan hellir hún sér í vatnsglas Tekur af sér jakkann Tekur síðan kipp þegar ég geng inn með látum og Hún veit að ég fékk mér bjór Ég er búinn að vinna í alla nótt Hún er eins og heimsendur engill Stendur þarna og reykir Kyssir mig á nefið og segir við mig „Það er allt í lagi að Gera mistök Ég hef hugsað um Þig í alla nótt“ Þegar hún fer úr kann hún galdra Tekur af sér farðann Leggur mig á sófann og rekur alla djöflana í burt Málaði heiminn og fór svo að þú yrðir ánægð Þegar þú situr hliðina á mér finnst mér guð vera nálægt Virkar eins og rotvarnarefni í heimi Sem að úldnar hægt Rífur þig úr og ég ríð þér í síðasta skiptið Ég finn brjóstið mitt opnast og beinin mín verða að ryki Stöðuvatnið hlustar á okkur á meðan Reyndu að hafa lágt Við erum lítið fólk Fyrir heiminum Við verðum Þórisvatn Myndum flóana Dreymi hana gangandi heim til mín Ég hef gengið gegnum öll helvíti Hún er eins og Barbara Stanwyck Uppmáluð og svarthvít Gengur inn í íbúð og kveikir sér í sígarettu Ég er á leiðinni Hugsandi um allt sem ég gerði henni Meðan hellir hún sér í vatnsglas Tekur af sér jakkann Tekur síðan kipp þegar ég geng inn Með látum og hún veit að ég fékk mér bjór Ég er búinn að vinna í alla nótt Hún er eins og heimsendur engill Stendur þarna og reykir Kyssir mig á nefið og segir við mig „Það er allt í lagi að Gera mistök, ég hef hugsað um Þig í alla nótt“ Þegar hún fer úr kann hún galdra Tekur af sér farðann Leggur mig á sófann og segir við mig „Það er allt í lagi að Gera mistök, ég hef hugsað um Þig í alla nótt Í alla nótt Í alla nótt Í alla nótt" ========================== Letra descargada de Letras10.co ==========================