Cancion : Árás Artista : Skálmöld Album : Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands (Extended) Url : https://www.letras10.co/letra-aras-de-skalmold Kvöld, úr norðri kólna fer Kemur yfir heiðar: Vængjasláttur, vætta her Varúlfar til reiðar Ég reið yfir landið mitt, reri' út á fjörð Rólegur sjórinn, ég lofaði Njörð Í ljósanna skiptum ég leit upp í Skörð Ljót var sú sýn er mér mætti Kom yfir brúnina kolsvartur her Ég kúventi bátnum og hraðaði mér Vængirnir steinrunnir, vígtannager Og væl sem nú kyrrðina tætti Skugga hann varpaði, skelfileg sjón Skálmöld var risin og mikið varð tjón Drukknaði þannig mín dýrasta bón Drepið var allt sem ég unni Verja þau átti en var til þess seinn Viti menn, lifandi eftir ei neinn Ataður svörður sem áður var hreinn Allt mitt var hrunið að grunni Ég sá: Barnið mitt tætt, blóðugt og hrætt Ég sá: Barið á húsgripum mínum og ætt Ég sá: Saklaust blóð, fljóta um fljóð Ég sá: Fjölskyldu slátrað sem var mér svo góð Ég sá: Deyja mær, dæturnar tvær Ég sá: Dreyrrauðar klærnar sem læstust í þær Ég sá: Visna jurt, var einhvers spurt? Ég sá: Vágestinn glotta og halda á burt Gekk um garð Gríðarskarð Höggvið hart Hel mig snart Vængjuð vá Vargur sá Nafn hans nefnt Nú skal hefnt Heit er gefið, heit sem verður efnt ========================== Letra descargada de Letras10.co ==========================