Letra Ástarljóð de Kaelan Mikla

Letra de Ástarljóð

Kaelan Mikla


Ástarljóð
Kaelan Mikla
(0 votos)
Hvernig gátu hunangsgylltar hlíðarnar
Og  bjargvættar bláminn í björgunum
Skyndilega  skotist á brott
Skelfingar skugginn er kuldalegur
Vorið var vonbrigði
Og  sumarið þrældómur vetrarins

Ég  er volandi vændiskona
Veggja sem hindra mína
Gleði  og glæstu framtíðar drauma
Ég man þegar ég speglaðist
Í gullslegnu vatni
Og sá sjálfa mig brosa

Svanurinn  sem kenndi mér
Forðum að fljúga
Er nú farinn, floginn á brott
Og ég sit hérna eftir
Alveg vængjalaus
Og velti því fyrir mér
Hvort ég fái nokkurn tíma aftur að fljúga

Ég festi mig við arfa í garðinum
Hjartað mitt er að springa
Skelfingar skjálfti í líkama mínum
Ríkir og reiðin er óflýjandi

Líkami minn er ólgusjór
Og ég vona að þið drukknið öll með mér
Hjartsláttur minn er óreglu öldugangur
Og lungun mín fyllast af vatni

Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín
Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín
Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín
Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín
Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín
Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Aftur

Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Aftur
Aftur


Comparte Ástarljóð! con tus amigos.


Que tal te parece Ástarljóð de Kaelan Mikla?
Pesima
Mala
Regular
Buena
Excelente