Letra Ég byggði dyr í eyðimörkinni de Misþyrming

Letra de Ég byggði dyr í eyðimörkinni

Misþyrming


Ég byggði dyr í eyðimörkinni
Misþyrming
(0 votos)
Ég byggði dyr í eyðimörkinni
Reisti þær í buska
Glæsilegar úr hlyn
Skreyttar blómamynstri:
Liljur og rósir
Vafðar saman
Í fléttum
Spíral
Gullnu sniði
Og náttúruformum sem hafa ekki nafn
Langt í fjarska
Í braut frá öllu
Stóðu dyrnar
Stórar, yfirþyrmandi
Læstar
En ekki hafði ég lykilinn
Mikið ofboðslega langaði mig í gegn
Ég ráfaði um eyðimörkina ráðlaus
Dögum, vikum saman
Sólin, sandurinn og heitur vindurinn
Tættu mig
Óbærileg var mér sú ferð
Þar til ég loks fann lykilinn
Þá fylltist ég vonarlosta
Ég spratt af stað
Lengst út í buska
En dyrnar voru hvergi
Líkt og þær hafi aldrei verið reistar


Comparte Ég byggði dyr í eyðimörkinni! con tus amigos.


Que tal te parece Ég byggði dyr í eyðimörkinni de Misþyrming?
Pesima
Mala
Regular
Buena
Excelente