Letra Þórisvatn (Næturvinnan) de Kef Lavík

Letra de Þórisvatn (Næturvinnan)

Kef Lavík


Þórisvatn (Næturvinnan)
Kef Lavík
(0 votos)
Alein um nótt, gegnum gjöreyddar borgir við keyrum
Þótt þú þegir og sofir þá glottir þú skítt út að eyrum
Aldrei viðurkennir þú það fyrir aðra
Þú ert lítil sál
Allt sem þú snertir mun breytast í gull á núll einni
Þegar tunglið er fullt mun ég umbreytast, verða að steini
Sársaukinn í hausnum á mér hann mun hverfa
Gefðu mér smá stund

Við erum lítið fólk
Fyrir heiminum
Við verðum Þórisvatn
Myndum flóana

Dreymi hana gangandi heim til mín
Ég hef gengið gegnum öll helvíti
Hún er eins og Barbara Stanwyck
Uppmáluð og svarthvít
Gengur inn í íbúð og kveikir sér í sígarettu
Ég er á leiðinni
Hugsandi um allt sem ég gerði henni
Meðan hellir hún sér í vatnsglas
Tekur af sér jakkann
Tekur síðan kipp þegar ég geng inn með látum og
Hún veit að ég fékk mér bjór
Ég er búinn að vinna í alla nótt
Hún er eins og heimsendur engill
Stendur þarna og reykir
Kyssir mig á nefið og segir við mig

„Það er allt í lagi að
Gera mistök
Ég hef hugsað um
Þig í alla nótt“
Þegar hún fer úr kann hún galdra
Tekur af sér farðann
Leggur mig á sófann og rekur alla djöflana í burt

Málaði heiminn og fór svo að þú yrðir ánægð
Þegar þú situr hliðina á mér finnst mér guð vera nálægt
Virkar eins og rotvarnarefni í heimi
Sem að úldnar hægt
Rífur þig úr og ég ríð þér í síðasta skiptið
Ég finn brjóstið mitt opnast og beinin mín verða að ryki
Stöðuvatnið hlustar á okkur á meðan
Reyndu að hafa lágt

Við erum lítið fólk
Fyrir heiminum
Við verðum Þórisvatn
Myndum flóana

Dreymi hana gangandi heim til mín
Ég hef gengið gegnum öll helvíti
Hún er eins og Barbara Stanwyck
Uppmáluð og svarthvít
Gengur inn í íbúð og kveikir sér í sígarettu
Ég er á leiðinni
Hugsandi um allt sem ég gerði henni
Meðan hellir hún sér í vatnsglas
Tekur af sér jakkann
Tekur síðan kipp þegar ég geng inn
Með látum og hún veit að ég fékk mér bjór
Ég er búinn að vinna í alla nótt
Hún er eins og heimsendur engill
Stendur þarna og reykir
Kyssir mig á nefið og segir við mig

„Það er allt í lagi að
Gera mistök, ég hef hugsað um
Þig í alla nótt“
Þegar hún fer úr kann hún galdra
Tekur af sér farðann
Leggur mig á sófann og segir við mig

„Það er allt í lagi að
Gera mistök, ég hef hugsað um
Þig í alla nótt
Í alla nótt
Í alla nótt
Í alla nótt"


Comparte Þórisvatn (Næturvinnan)! con tus amigos.


Que tal te parece Þórisvatn (Næturvinnan) de Kef Lavík?
Pesima
Mala
Regular
Buena
Excelente